Jamaal Lascelles, fyrirliði Newcastle, verður frá keppni þar til á næsta ári vegna meiðsla á hné.
Lascelles meiddist eftir samstuð við Martin Dubravka, markvörð Newcastle, í leik liðsins gegn Bournemouth um síðustu helgi.
Lascelles meiddist eftir samstuð við Martin Dubravka, markvörð Newcastle, í leik liðsins gegn Bournemouth um síðustu helgi.
Hinn 26 ára gamli Lascelles mun líklega missa að minnsta kosti af átta leikjum en mikið af leikjum er framundan í desember.
Paul Dummett leysti Lascelles af hólmi gegn Bournemouth en vonir standa til að svissneski varnarmaðurinn Fabian Schar verði klár eftir meiðsli eftir landsleikjahléið.
Lascelles er lykilmaður hjá Newcastle en hann hefur spilað alla leiki liðsins á tímabilinu.
Athugasemdir