Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 14. nóvember 2019 08:30
Magnús Már Einarsson
Ray áfram með Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík hefur gert nýjan tveggja ára samning við Ray Anthony Jónsson, þjálfara meistaraflokks kvenna.

Ray var lengi vel leikmaður með Grindavík en hann hefur undanfarin tvö ár þjálfað meistaraflokk kvenna hjá félaginu.

Grindavík endaði í næstneðsta sætinu í Inkasso-deild kvenna í sumar og féll eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni árið áður.

„Erum við í vinnu að byggja upp nýjan kjarna af ungum og efnilegum heimastúlkum í bland við nokkra eldri leikmenn," segir á Facebook síðu Grindavíkur.

„Okkar hlutskipti eftir sumarið var að falla niður um deild eftir æsispennandi sumar því er okkar markmið að komast strax aftur upp."

„Hvetjum við ykkur að vera dugleg að fylgjast með stelpunum á komandi tímabili og óskum Ray góðs gengis."

Athugasemdir
banner
banner
banner