Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. nóvember 2020 09:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hamren hættir eftir Englandsleikinn (Staðfest)
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsþjálfarinn Erik Hamren staðfesti á fréttamannafundi að hann muni hætta sem þjálfari íslenska landsliðsins eftir Englandsleikinn í næstu viku.

Tveir leikir eru eftir af Þjóðadeildinni og hann mun hætta í kjölfar þeirra.

Hann sagði það svekkjandi að þetta endaði svona, þegar fimm mínútur voru eftir af Ungverjaleiknum á fimmtudag vorum við á leiðinni á EM.

Ísland mætir Danmörku á morgun og Englandi á miðvikudag. Hamren þakkar leikmönnum og starfsliðinu fyrir tímann en ætlar ekki að gera hann upp fyrir enn eftir lokaleikinn gegn Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner