Fotbolti.net
14.12.20 - 07:00
Aksentije Milisic

Halldór Mar og Marinó Snær áfram hjá KF (staðfest)

Halldór Mar og Marinó Snær áfram hjá KF (staðfest)
Canon

Mynd: KF

Marinó Snær Birgisson og Halldór Mar Einarsson hafa báðir framlengt samning sinn við KF.
KF, sem leikur í 2. deild, gerði góða hluti á síðustu leiktíð en liðinu var spáð botnsætinu fyrir tímabilið. KF lenti hins vegar í 6. sæti deildarinnar og var það besti árangur liðsins síðan sumarið 2013.

Marinó Snær og Halldór Mar komu báðir til liðsins í fyrra. Marinó var mikið meiddur og spilaði lítið en Halldór Mar lék 18 leiki fyrir liðið og stóð sig með prýði.

Hér má sjá tilkynningu af Facebook síðu Knattspyrnufélags Fjallabyggðar.

„Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, Marinó Snær Birgisson og Halldór Mar Einarsson hafa gert samkomulag um að þeir tveir leiki með okkur á næsta keppnistímabili hið minnsta.
Marinó Snær er uppalinn Þórsari og skipti yfir í KF fyrir síðasta sumar. Marinó er fæddur árið 1999 og hefur hann leikið 4 leiki fyrir KF.
Halldór Mar er einnig uppalinn Þórsari og skipti yfir í KF síðasta sumar. Halldór Mar er fæddur árið 1998 og spilaði hann 18 leiki í deild og bikar fyrir KF árið 2020
Stjórn KF fagnar samkomulaginu og hlakkar til að sjá strákana á vellinum árið 2021."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.