15.01.15 - 16:21
Elvar Geir Magnússon
Dagný Brynjars í Bayern München (Staðfest)

Dagný skrifar undir.

Mynd: FC Bayern München

Dagný skrifar undir.

Mynd: FC Bayern München

Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir samning við Bayern München en hún gengur í raðir félagsins frá Florida State University og spilar með því út tímabilið.
Thomas Wörle, þjálfari Bayern, segir á heimasíðu Bayern að Dagný sé mjög hæfileikarík og hættuleg sóknarlega. Hún geti spilað bæði sem sóknarmiðjumaður og framherji.

„Ég hlakka til að vinna með svona ungum og ákveðnum leikmanni,\" segir Wörle en Dagný er 23 ára og á 48 leiki fyrir A-landslið Íslands.
„Ég hlakka til að byrja að vinna hjá FC Bayern. Mín markmið eru að halda áfram að þróast sem leikmaður og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum. Ég er spennt fyrir komandi mánuðum\"
Bayern er í öðru sæti í þýsku kvennadeildinni, tveimur stigum á eftir Wolfsburg. Keppni eftir vetrarfrí hefst 15. febrúar.