Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. janúar 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool tilnefnt til tveggja Laureus verðlauna
Mynd: Getty Images
Liverpool er tilnefnt til verðlauna í tveimur flokkum á Laureus íþróttahátíðinni.

Laureus íþróttahátíðin er gríðarlega virt en verðlaunaafhending fyrir árið 2019 fer fram í Berlín þann 17. febrúar næstkomandi.

Liverpool er eitt sex liða sem kemur til greina sem lið ársins.

Þá er liðið tilnefnd í flokki fyrir endurkomu ársins. Liverpool vann Barcelona 4-0 á heimavelli í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir 3-0 tap í fyrri leiknum.

Lionel Messi, leikmaður Barcelona, er einn sex íþróttamanna sem kemur til greina í vali á íþróttamanni ársins og bandaríska landsliðskonan Megan Rapinoe kemur til greina sem íþróttakona ársins.
Athugasemdir
banner
banner
banner