Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 15. janúar 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Bruno Fernandes leikmaður mánaðarins í fjórða skipti
Dean Smith stjóri mánaðarins
Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, hefur verið valinn leikmaður desember mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Bruno Fernandes kom til Manchester United frá Sporting Lisabon fyrir tæpu ári síðan en hann hefur gjörsamlega slegið í gegn á Old Trafford.

Í desember skoraði Bruno þrjú mörk í sex leikjum og hjálpaði Manchester United að klifra upp töfluna en liðið var taplaust í mánuðinum.

Þetta er í fjórða skipti sem Bruno er valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni og ef hann verður valinn einu sinni til viðbótar jafnar hann met Wayne Rooney yfir leikmenn Manchester United sem hafa unnið þessi verðlaun oftast.

Dean Smith, stjóri Aston Villa, var valinn stjóri mánaðarins en liðið vann þrjá af fimm leikjum sínum í desember.


Athugasemdir