Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. janúar 2021 09:48
Magnús Már Einarsson
Hákon í byrjunarliðinu hjá FC Kaupmannahöfn
Hákon Arnar Haraldsson
Hákon Arnar Haraldsson
Mynd: Hulda Margrét
Hinn 17 ára gamli Hákon Arnar Haraldsson er í byrjunarliðinu hjá FC Kaupmannahöfn sem mætir Hvidovre í æfinga leik í dag.

Hákon hefur raðað inn mörkum með U19 ára liði FCK og fær tækifæri með aðalliðinu í dag.

Hákon kom til FCK frá ÍA árið 2019 en hann hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands.

Vetrarfrí er í gangi í dönsku úrvalsdeildinni en keppni hefst þar á ný í byrjun febrúar. Fram að því spilar FC Kaupmannahöfn nokkra æfingaleiki.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner