Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. janúar 2021 19:35
Victor Pálsson
Ighalo horfir til MLS - Bíður eftir tilboði
Mynd: Getty Images
Odion Ighalo, leikmaður Manchester United, er til í að semja við lið í MLS-deildinni síðasr í þessum mánuði.

Ighalo er í láni hjá Man Utd frá Shanghai Shenhua í Kína en hann fær afar takmarkað að spila á Old Trafford þessa dagana.

Ighalo er hrifinn af efstu deild Bandaríkjanna og er vel til í að semja við lið þar á næstu vikum.

„Ég hef fylgst með MLS og deildinni gengur vel, ég væri til í að spila þar," sagði Ighalo við ESPN.

„Ég verð að bíða eftir tilboðum og ef það kemur þá mun ég taka því. Deildin er á uppleið, lífið þar er gott og ég myndi elska það."

„Það eru margir leikmenn sem fara þangað. Gonzalo Higuain er meira að segja þarna og Giovanni dos Santos, svo af hverju ekki?"
Athugasemdir
banner
banner