15.02.15 - 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Ágúst Freyr í HK (Staðfest)
Andri Geir framlengir

Andri Geir í leik með ÍA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Geir í leik með ÍA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Freyr Hallsson er genginn í raðir HK en hann kemur til Kópavogsliðsins frá Víkingi R.
Ágúst var á láni hjá Ægi í 2.deildinni í fyrra þar sem hann skoraði 4 mörk í 17 leikjum en Ágúst er sóknarmaður sem er fæddur árið 1994.
Hann gerir tveggja ára samning við HK en hann hefur leikið með liðinu í Fótbolta.net mótinu undanfarnar vikur.
Þá gerði Andri Geir Alexandersson sömuleiðis tveggja ára samning við HK í gær en hann lék með liðinu í 1.deildinni síðasta sumar eftir að hafa spilað með uppeldisfélagi sínu, ÍA, á árunum 2010-2013.

Heimild: HK.is