Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 15. febrúar 2020 13:11
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Berglind heldur áfram að skora fyrir Milan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tavagnacco 0 - 4 AC Milan
0-1 L. Tucceri ('55)
0-2 V. Giacinti ('61)
0-3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('77)
0-4 S. Tamborini ('84)

Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur farið feykilega vel af stað með AC Milan í ítölsku kvennadeildinni og skoraði hún aftur er liðið sigraði Tavagnacco í dag.

Staðan var markalaus þar til í síðari hálfleik þegar flóðgáttirnar opnuðust.

Berglind skoraði þriðja mark Milan á 77. mínútu og er hún komin með fimm mörk í fimm fyrstu deildarleikjum sínum fyrir félagið. Skömmu síðar lagði hún fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Sara Tamborini.

Milan er í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum eftir toppliði Juventus sem á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner