banner
   lau 15. febrúar 2020 15:11
Ívan Guðjón Baldursson
Westwood hélt að Ben Mee ætti markið
Mynd: Getty Images
Burnley lagði Southampton að velli í enska boltanum í dag. Ashley Westwood skoraði fyrsta mark leiksins beint úr hornspyrnu en í atgangnum hélt hann að liðsfélagi sinn Ben Mee hefði skorað.

„Ég vissi ekki einu sinni að þetta væri mitt mark, ég hélt að Ben Mee ætti þetta. Sem betur fer fyrir mig var boltinn kominn yfir línuna!" sagði Westwood að leikslokum.

Matej Vydra, sem hefur ekki fengið mikinn spiltíma hjá Burnley, kom inn af bekknum á 22. mínútu þegar Chris Wood þurfti að fara útaf vegna meiðsla.

Vydra gerði glæsilegt sigurmark Burnley í seinni hálfleik og fór í viðtal eftir Westwood.

„Ég er búinn að bíða lengi eftir þessu tækifæri og það er góð tilfinning að nýta það. Þetta var frábært mark en stigin þrjú eru mikilvægust."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner