Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Dómarasambandið biðst afsökunar
Gianluca Rocchi á Laugardalsvelli.
Gianluca Rocchi á Laugardalsvelli.
Mynd: Guðmundur Karl
Mynd: EPA
Gianluca Rocchi yfirmaður dómaramála í efstu deild á Ítalíu er búinn að biðjast afsökunar eftir hörmuleg mistök í 3-2 sigri Inter gegn Juventus sem fór fram í gærkvöldi.

Pierre Kalulu, leikmaður Juventus, fékk seinna gula spjaldið sitt eftir samskipti við Alessandro Bastoni en endursýningar sýndu að Bastoni dýfði sér til jarðar.

   15.02.2026 06:00
Sjáðu atvikið: Fiskaði Kalulu útaf


Báðir leikmenn voru á gulu spjaldi og brást Kalulu illa við því að vera sendur í sturtu. VAR-teymið mátti ekki skerast í leikinn vegna reglugerðar ítölsku deildarinnar, þar sem um seinna gult spjald var að ræða frekar en beint rautt.

Luciano Spalletti þjálfari var brjálaður eftir ákvörðunina ásamt stjórnendum félagsins Giorgio Chiellini og Damien Comolli sem fóru mikinn í viðtölum eftir leik. Spalletti neitaði að mæta í viðtal í mótmælaskyni.

   15.02.2026 06:00
Sjáðu atvikið: Spalletti, Chiellini og Comolli brjáluðust


„Við hörmum þetta atvik. Við hörmum að (Federico) La Penna hafi tekið ranga ákvörðun og að bundið var fyrir hendur VAR-teymisins til að skerast í leikinn. La Penna er miður sín útaf þessu atviki og við stöndum þétt við bakið á honum," segir Rocchi.

Staðan var jöfn, 1-1, þegar Kalulu var rekinn af velli á 42. mínútu. Inter skoraði sigurmark leiksins á 90. mínútu og er með átta stiga forystu á toppi Serie A.

   15.02.2026 13:50
Fyrrum forsætisráðherra Ítalíu: Bastoni á ekki að vera í landsliðinu


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner