Liverpool vann 3-0 gegn Brighton í enska bikarnum í gær og átti Mohamed Salah góðan leik þar sem hann skoraði og lagði upp.
Salah var spurður að leikslokum hvort Liverpool gæti unnið bikarkeppnina.
„Það mun velta á Szoboszlai útaf því að við erum búnir að reiða okkur svo mikið á hann á tímabilinu. Hann er einn af bestu fótboltamönnum í heimi í dag og ég vona að hann geti haldið þessu áfram," sagði Salah.
Arne Slot svaraði einnig spurningum og sagðist vera sammála Salah.
„Margir fótboltamenn í heiminum eru mjög góðir eða í hæsta gæðaflokki og ég er alveg sammála Mo (Salah) um að Dominik (Szoboszlai) er einn af þeim," sagði Slot, sem svaraði svo spurningu um Salah.
„Mo Salah hefur verið að spila mjög vel upp á síðkastið en það sem mér líkar mest er hversu duglegur hann hefur verið að sinna varnarvinnunni. Það er mjög jákvætt."
Dominik Szoboszlai tjáði sig einnig eftir sigurinn gegn Brighton.
„Ég er ekki að spila eins og Steven Gerrard en hann er goðsögn fyrir félagið, ég er að skrifa mína eigin sögu. Ég reyni að gera mitt besta í hverjum einasta leik og vonandi komumst við alla leið."
14.02.2026 23:30
Szoboszlai dreymir um Real Madrid
Athugasemdir





