15.03.15 - 09:00
Magnús Már Einarsson
Jóhannes Harðarson í KFS (Staðfest)

Jóhannes Harðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV, hefur fengið leikheimild með KFS en hann mun leika með liðinu í 3. deildinni í sumar.
Hinn 38 ára gamli Jóhannes lék í atvinnumennsku frá aldamótum áður en hann tók við ÍBV síðastliðið haust.

,,Sigurvin Ólafsson fær með honum verðugan arftaka í sumar, ef Venni heldur ekki einfaldlega áfram með okkur. Þvílík yfirsýn á vellinum, getur varist, skorað, haldið tempói, róað leikinn og ég veit ekki hvað,\" sagði Doktor Hjalti Kristjánsson þjálfari KFS við Fótbolta.net.
Tryggvi Guðmundsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, mun einnig leika áfram með KFS í sumar á meðan það gengur samhliða því að þjálfa ÍBV.
KFS komst óvænt upp úr 4. deildinni síðastliðið haust þegar Grundarfjörður ákvað að draga sig úr keppni.
KFS er að styrkja hóp sinn þessa dagana en Gunnar Páll Pálsson, Guðmundur Tómas Sigfússon og Kjartan Guðjónsson eru allir komnir til liðsins.
Allir eru þeir sóknarsinnaðir leikmenn. Gunnar Páll hefur leikið með ÍH, HK og Hamri en Guðmundur Tómas og Kjartan eru báðir uppaldir í ÍBV. Kjartan spilaði með Hamri í fyrra líkt og Gunnar Páll.
,,Eftir að hafa fengið alla þessa leikmenn til viðbótar við fyrirsitjandi snillinga KFS hlýtur krafan um árangur að aukast. Þetta gæti orðið okkar stærsta tímabil, þótt við sláum varla við tímabilinu 2002 strax,\" sagði Hjalti en þá fór KFS upp í 2. deild.

Gunnar Páll Pálsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Guðjónsson.

Mynd: Örn Hilmisson