Fotbolti.net
15.03.17 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Brynjar Óli lánaður í Vestra (Staðfest)

Vestri að safna liði

Vestri að safna liði

Canon

Mynd: Vestri

Sóknarmaðurinn Brynjar Óli Bjarnason mun spila með Vestra í 2.deildinni næsta sumar en hann er lánaður til liðsins frá Pepsi-deildarliði Breiðabliks.
Brynjar Óli er enn gjaldgengur með öðrum flokki en hann gerði þriggja ára samning við Breiðablik og var svo í kjölfarið lánaður til Vestra.

„Brynjar Óli, sem er á síðasta ári í 2. flokki,hefur verið einn af lykilmönnum í flokknum og átti sinn þátt í því að Breiðablik hampaði Íslandsmeistaratitlinum undanfarin tvö ár.

Brynjar Óli er sterkur og leikinn framherji og var meðal annars markahæsti leikmaður 2. flokksins í fyrra,\"
er meðal þess sem segir í tilkynningu Blika.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.