Fotbolti.net
15.03.20 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leiknir R. lokar félagsheimili sínu

Leiknismenn fagna marki í 1. deildinni í fyrra.

Leiknismenn fagna marki í 1. deildinni í fyrra.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Leiknir Reykjavík hefur sent frá sér tilkynningu þar sem er greint frá því að félagsheimilinu verði lokað út af smithættu á kórónuveirunni.
Tilkynning Leiknis:
Á morgun, mánudag, verður frí frá æfingum hjá Leikni þar sem við vinnum í að útbúa nýtt skipulag fyrir næstu vikur.

Við munum setja saman nýjar æfingatöflur sem verða settar inn á síður flokkanna. Þjálfarar munu haga æfingum þannig að sem mesta öryggis sé gætt.

Við höfum ákveðið að Leiknishúsið verði lokað og klefarnir því ekki í notkun á meðan samkomubann stendur yfir. Iðkendur eiga að mæta tilbúnir á æfingar og passa vel upp á hreinlæti, fyrir og eftir æfingar.

Við hvetjum fólk til að vera meðvitað um ástandið en frekari reglur verða kynntar samhliða nýjum æfingatöflum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.