Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson voru báðir í byrjunarliði CSKA Moskvu sem mætti Ufa á heimavelli í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.
Leikjum hefur verið frestað víðs vegar um Evrópu, en spilað er í löndum eins og Kasakstan, Tyrklandi, og jú, Rússlandi.
Leikurinn var ekki upp á marga fiska. CSKA var mun sterkari aðilinn, en náði ekki að skora og var niðurstaðan markalaust jafntefli.
Arnór og Hörður spiluðu allan leikinn fyrir CSKA sem er í fimmta sæti með 36 stig.
Fyrr í dag tapaði Krasnodar 2-0 á útivelli gegn Sochi. Jón Guðni Fjóluson var allan tímann á bekknum hjá Krasnodar sem er í öðru sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Zenit.
Athugasemdir