Fotbolti.net
14.06.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM í dag - Þýskaland, Holland og Svíþjóð mæta til leiks

HM í dag - Þýskaland, Holland og Svíþjóð mæta til leiks
Canon

Mynd: EPA

Það eru fjórir leikir á dagskrá á heimsmeistaramótinu í dag þar sem stórveldi Þýskalands, sem er næstsigursælasta þjóð HM með fjóra titla, tekur á móti nýliðum Curacao í fyrsta leik.
Þar er búist við stórsigri Þjóðverja en í kvöld á Holland gríðarlega spennandi leik við Japan.

Seinna í kvöld eigast Fílabeinsströndin og Ekvador svo við í öðrum spennandi slag, en þau leika í riðlinum með Þýskalandi og Curacao.

Að lokum mætast Svíþjóð og Túnis í nótt en þau eru í afar spennandi riðli ásamt ásamt Hollandi og Japan.

Ljóst er að hart verður barist í leikjum kvöldsins enda ríkir mikil spenna á upphafsmetrunum á þessu risastóra 48-liða heimsmeistaramóti.

Leikir dagsins:
17:00 Þýskaland - Curacao
20:00 Holland - Japan
23:00 Fílabeinsströndin - Ekvador
02:00 Svíþjóð - Túnis
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM í dag - Þýskaland, Holland og Svíþjóð mæta til leiks
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.