Aðalsteinn Jóhann: Byrjun á einhverju

Aðalsteinn var ánægður með innkomu Erin í leikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur og Þór/KA gerðu markalaust jafntefli í 8. umferð Bestu deildar kvenna. Með jafnteflinu náði Þór/KA að binda enda á 5 leikja taphrinu. Fótbolti.net náði tali af Aðalsteini Jóhanni Friðrikssyni, þjálfara Þór/KA, eftir leik.
„Fyrst og fremst er ég ánægður með margt hjá Þór/KA í dag, það var andi og vilji í liðinu hjá okkur í dag. Því miður tókst okkur ekki að skora en við héldum markinu hreinu og náðum í stig, það er byrjun á einhverju," sagði Aðalsteinn eftir leik.
Aðalsteinn var spurður hvort að með jafnteflinu væri liðið búið að stöðva einhvers konar blæðingu.
„Við erum að spyrna okkur frá, það var að byrja í dag og margir hlutir sem voru jákvæðir í okkar leik. Fyrst og fremst það að við gáfum ekki færi á okkur og fengum ekki á okkur mark. Við fengum einhver tækifæri í seinni hálfleik og það hefði verið gaman að setja mark á þær en þetta fór 0-0 og það þýðir ekkert annað en taka því stigi og halda áfram. "
Þór/KA hafði fengið á sig 12 mörk í síðustu þremur leikjum fyrir leikinn í dag.
„Við höfum rætt varnarleikinn í fríiinu og farið yfir hann. Ég vil bæta því við líka að andinn var góður í liðinu og vorum tilbúnar að hlaupa og berjast fyrir hvor aðra, "sagði Aðalsteinn að lokum.