Fotbolti.net
14.06.26 - 09:14
Mate Dalmay

Fótbolti.net kynnir nýja áskriftarleið og nýtt útlit

Fótbolti.net kynnir nýja áskriftarleið og nýtt útlit
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Fótbolti.net hefur um árabil verið leiðandi miðill í umfjöllun um fótbolta á Íslandi og nú stígum við næsta skref.

Almennur fréttaflutningur um allt það helsta í fótboltaheiminum heldur áfram að vera opinn. Fréttir, úrslit og almenn umfjöllun verður áfram aðgengileg öllum lesendum líkt og síðustu 24 ár en nú kynnum við til leiks áskriftarleið fyrir þá sem vilja enn meira efni um fótbolta.

Markmiðið er að bjóða lesendum upp á ítarlegri og vandaðri umfjöllun en nokkru sinni fyrr og með áskrift þinni getum við leyft okkur að fjölga starfsfólki og sinna íþróttinni sem við elskum enn betur.

Áskrifendur fá meðal annars aðgang að:
- Ítarlegri tölfræði frá StatsPerform (áður Opta) í textalýsingum úr Bestu deild karla, Heimsmeistaramótinu og ensku úrvalsdeildinni. Jafnframt verður bein textalýsing frá öllum leikjum HM og ensku úrvalsdeildarinnar næsta tímabil.

- Ítarlegri viðtöl við leikmenn, þjálfara og aðra lykilaðila í fótboltaheiminum.

- Viðbótarefni frá fréttamönnum Fótbolta.net og nýjum pistlahöfundum sem sérvinna efni fyrir áskrifendur.

- Forgangur og afsláttur á viðburði Fótbolti.net en 17. júní næstkomandi höldum við vítaspyrnukeppni Fótbolti.net þar sem verðlaunin verða afnot af Teslu Model Y og hjólhýsi í viku. Fyrstu 100 áskrifendurnir sem mæta taka þátt ókeypis.

- Í mörg ár hafa notendur óskað eftir að geta flokkað fréttir á forsíðu eftir áhugasviði og fá áskrifendur nú loksins tækifæri til að gera þetta.

- Vikulegur tölvupóstur frá ritstjóra Fótbolta.net með samantekt á því helsta sem gerðist í liðinni viku.

Áskriftarleiðin er ætluð þeim sem vilja kafa enn dýpra og styðja um leið við áframhaldandi uppbyggingu miðilsins.

Nánari upplýsingar um áskrift, verð og innihald má sjá hér.
Við hlökkum til að taka næsta skref í sögu Fótbolta.net með ykkur.

Samhliða áskriftinni kynnum við jafnframt nýtt útlit á vefnum. Að innleiða nýtt útlit er stórt verkefni og eru enn nokkur atriði sem þarf að fínpússa. Við gefum okkur næstu daga í að klára það að fullu og vonum að þið sýnið því skilning.

Fótbolti.net kynnir nýja áskriftarleið og nýtt útlit
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Fótbolti.net kynnir nýja áskriftarleið og nýtt útlit
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.