Fotbolti.net
14.06.26 - 12:59
Brynjar Ingi Erluson

Neitað um inngöngu í Bandaríkin en fær samt fullgreitt

Neitað um inngöngu í Bandaríkin en fær samt fullgreitt
Canon

Mynd: EPA

Sómalski dómarinn Omar Artan, sem neitað var um inngöngu inn í Bandaríkin fyrir HM, fær fullgreitt frá FIFA þrátt fyrir að fá ekki að dæma leik á mótinu.
Artan var yfirheyrður í ellefu klukkustundir af útlendingaeftirliti Bandaríkjanna á flugvellinum í Miami á mánudag áður en honum var tjáð að honum yrði ekki hleypt inn í landið. Diplómatapassa hans og bandarískri vegabréfsáritun fyrir eina komu hafði verið hafnað.

Ríkisstarfsmaður í Bandaríkjunum sagði að Artan hefði ekki verið hleypt inn í landið vegna mögulegra tengsla hans við hryðjuverkasamtök.

Artan sagði að hann hefði verið yfirheyrður af landamærayfirvöldum vegna meintra tengsla sinna við sómölsku vígasamtökin Al Shabab, en hann sagðist hafa tjáð þeim að hann kannaðist ekkert við samtökin.

„Ég var með réttu gögnin og allt. Ég var með réttu vegabréfsáritunina. Ég er bara dómari sem er að reyna að láta draum sinn rætast, draum lífs míns um að komast á HM,“ sagði Artan.

Hann var sendur til baka í flugi til Tyrklands þar sem hann fékk aðstoð frá starfsmönnum FIFA í Istanbúl áður en honum var flogið til Mogadishu, höfuðborgar Sómalíu.

BBC segir að þó Artan muni ekki taka neinn þátt á HM muni FIFA samt standa við launagreiðslur til hans og að hann fái greitt fyrir allt mótið.

Dómarar vita ekki upphæðina sem þeir fá greidda fyrir að dæma á HM, en greiðslan fer fram eftir að mótinu lýkur.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.