Fotbolti.net
14.06.26 - 00:05
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Jafnt í fyrsta stórleiknum

HM: Jafnt í fyrsta stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Brasilía 1 - 1 Marokkó
0-1 Ismael Saibari ('21)
1-1 Vinicius Junior ('32)
Brasilía og Marokkó áttust við í gæðamiklum leik í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins og jafnframt fyrsta stórleik mótsins í ár.

Marokkó byrjaði af krafti og skapaði usla áður en Ismael Saibari skoraði eftir frábæra stungusendingu frá Brahim Díaz. Marokkó verðskuldaði að taka forystuna en Brassarnir unnu sig inn í leikinn og jöfnuðu ellefu mínútum síðar.

Vinícius Júnior gerði jöfnunarmarkið eftir frábært framtak úti á vinstri kantinum. Hann fékk aðstoð frá Bruno Guimaraes sem fær skráða stoðsendingu og sýndi Vinícius heiminum enn eina ferðina nákvæmlega hvaða gæðum hann býr yfir.

Staðan var jöfn 1-1 eftir fjörugan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu færi til að skora fleiri mörk. Afríska stórveldið Marokkó var hættulegra liðið í fyrri hálfleik en skapaði lítið í bragðdaufum síðari hálfleik.

Það var áfram mikill hraði og góð gæði í leiknum en hvorugu liði tókst að skapa mikla hættu. Brasilía var meira með boltann og fékk nokkur hálffæri en Yassine Bounou lenti ekki í miklum erfiðleikum á milli stanganna. Lokatölur urðu því 1-1 eftir tíu mínútna uppbótartíma þar sem Marokkó komst nær því að skora heldur en Brasilía.

Haítí og Skotland eru einnig með í afar spennandi C-riðli heimsmeistaramótsins.

Sjáðu mörkin: Jafnt í hálfleik í fyrsta stórleiknum
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Jafnt í hálfleik í fyrsta stórleiknum

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM: Jafnt í fyrsta stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

HM: Jafnt í fyrsta stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.