15.04.20 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sex nýir leikmenn til Fram (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram

Fram tilkynnti í síðasta mánuði að sjö nýir leikmenn væru komnir í raðir félagsins. Fram mun tefla fram liði í 2. deild kvenna á komandi leiktíð og heldur áfram að styrkja sig.
Leikmennirnir sem tilkynntir voru í gær eru: Hrafnhildur Líf Jónsdóttir, uppalin í Fram.
Petra María Ingvaldsdóttir, einnig uppalin í Fram en kemur frá Aftureldingu, Siguraug Sara Þórsdóttir, uppalin í Fram og Alma Magnúsdóttir Acosta, uppalin í Fram. Þá koma þær Herdís van der Linden og Ester Gunnarsdóttir til félagsins frá KM.
Christopher Harrington, þjálfari liðsins, hafði þetta um nýju leikmennina að segja:
„Að sjálfsögðu er ég glaður að fá þennan hóp inn. Í þessum hópi erum við með blöndu af ungum og hungruðum uppöldnum Fram-leikmönnum ásamt blöndu af reynslu og gæðum."
„Ungu leikmennirnir koma með hungur, orku og vilja til að bæta sig á meðan reyndari leikmennirnir eins og Ester og Herdís hafa haldið í ástríðuna með því að leika með KM."