Þessa stundina eru 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar í fullum gangi en nú hefur verið flautað til leikhlés.
Í Prag eigast við Slavia Prag og Arsenal. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli í London þar sem Tékkarnir jöfnuðu metin í uppbótartíma.
Því var ljóst að Arsenal þurfti að skora mark eða mörk til þess að komast áfram í undanúrslitin. Það hefur ekki verið neitt vandamál fyrir Arsenal í kvöld en liðið er að valta yfir Slavia Prag.
Eftir 24 mínútna leik var staðan orðin 3-0 fyrir Skyttunum. Nicolas Pepe og Alexandre Lacazette gerðu tvö fyrstu mörk gestanna en í stöðunni 0-0 var mark dæmt af Emile Smith-Rowe vegna rangstöðu.
Bukayo Saka hefur verið frábær í fyrri hálfleiknum en hann kom Arsenal í 3-0 eftir flottan sprett. Hann fékk þá sendingu frá Calum Chambers, fór illa með varnarmann Slavia Prag áður en hann þrumaði knettinum í nærhornið.
Þetta snyrtilegt mark hjá Saka má sjá hérna.
Athugasemdir