Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 15:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Donni í skýjunum: Ótrúlegt afrek hjá stelpunum
Kvenaboltinn
Hópurinn og starfsteymið með íslenska fánann.
Hópurinn og starfsteymið með íslenska fánann.
Mynd: Aðsend
Leikmannahópurinn eftir sigur gegn Serbíu og þær búnar að tryggja sætið á EM.
Leikmannahópurinn eftir sigur gegn Serbíu og þær búnar að tryggja sætið á EM.
Mynd: Aðsend
Donni er aðalþjálfari liðsins.
Donni er aðalþjálfari liðsins.
Mynd: Aðsend
Svona var byrjunarliðið gegn Serbíu.
Svona var byrjunarliðið gegn Serbíu.
Mynd: KSÍ
Liðsmynd fyrir fyrsta leikinn, gegn Finnum.
Liðsmynd fyrir fyrsta leikinn, gegn Finnum.
Mynd: KSÍ
Thelma Karen byrjaði í leik A-landsliðsins gegn Úkraínu í gær. Hún er gjaldgeng í U19 landsliðið.
Thelma Karen byrjaði í leik A-landsliðsins gegn Úkraínu í gær. Hún er gjaldgeng í U19 landsliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Aldís Ylfa Heimisdóttir var aðstoðarþjálfari Donna í Serbíu.
Aldís Ylfa Heimisdóttir var aðstoðarþjálfari Donna í Serbíu.
Mynd: KSÍ
„Ég er alveg í skýjunum, ótrúlega ánægður með stelpurnar. Ég er ótrúlega stoltur af þeim, þær eru búnar að leggja á sig fáránlega mikla vinnu. Bæði Finnland og Danmörk eru mjög sterkar þjóðar og voru hærra skrifaðar en við. Komandi inn í þetta verkefni ætluðum við okkur klárlega stóra hluti en vissum að það yrði mjög erfitt. Og það var það, en stelpunum tókst að rísa aðeins yfir það og með frábærri samheldni og góðum liðsanda tókst þetta."

Þetta segir Halldór Jón Sigurðsson, Donni, sem stýrði U19 ára landsliði kvenna á EM í dag með sigri á Serbíu í undankeppninni.

íslenska liðið þurfti sigur gegn heimakonum í Serbíu og vann íslenska liðið öruggan 3-0 sigur. Liðið endaði í efsta sæti milliriðilsins og tryggði sér sæti á EM. Lokamótið fer fram í Bosníu-Hersegóvínu í sumar.

Varð allt að ganga upp
„Danmörk og Finnland eru með góð lið á þessu stigi, verkefnið var ekki ómögulegt, vissum að við værum á svipuðum stað, en það þurfti allt að ganga upp."

„Við fengum öðruvísi aðdraganda en hinar þjóðirnar, fengum ekki æfingaleiki en þær fengu það, okkar aðdragandi var því aðeins minni. Ef allt er til tekið þá var þetta ótrúlegt afrek hjá stelpunum, árangurinn í þessu verkefni,"
segir þjálfarinn.

Getum verið mjög stolt
Fannst þér vera góð framþróun á liðinu frá fyrsta stigi undankeppninnar?

„Já, algjörlega, það er mikill stígandi. Í fyrsta riðlinum, þar sem við mættum Portúgal, Danmörku og Kósovó í Portúgal, þá áttum við einn heilan leik sem var mjög góður. Þar fyrir utan var sitthvor hálfleikurinn góður gegn Danmörku og Portúgal. Núna náðum við að binda saman allar mínúturnar mjög góðar. Við spiluðum á hárri ákefð, gæðin voru góð, tengdum saman mikið af sendingunum og ég er mjög ánægður að hafa bundið þetta allt saman. Við náðum að nýta hópinn vel og breiddin var góð. Við getum verið mjög stolt af þessu."

Lærðu af tapinu gegn Dönum fyrr í vetur
Á fyrsta stiginu tapaði íslenska liðið á móti Dönum. Hvað breyttist á milli leikja?

„Stöðugleikinn varð meiri og frammistaðan betri heilt yfir. Þegar við mættum þeim í Portúgal þá vorum við betra liðið í seinni hálfleiknum en núna náðum við báðum hálfleikjunum góðum."

„Svo var þjálfarinn (Donni sjálfur) kannski aðeins grænni í Portúgal, ætlaði að vera sniðugur á vondum velli og það gekk illa. Núna var ég orðinn reynslunni ríkari í þessum bolta og við náðum taktískt að gera þetta allt vel. Heilt yfir voru stelpurnar með meiri orku, meiri vilja og betri í því sem átti að gera inn á vellinum."


Aðstæður til fyrirmyndar
Á morgun verður tíundi dagurinn í Serbíu.

„Þetta er búið að vera alveg ótrúlega flott, draumi líkast í rauninni. Aðstæður eru geggjaðar, búið að vera flott fótboltaveður og það hefur farið vel um okkur á hótelinu. Allar aðstæður hér eru algjörlega til fyrirmyndar."

Hefði ekki getað hugsað sér betra teymi
Donni hrósar starfsliðinu í kringum liðið í hástert.

„Það er algjörlega stórkostlegt, í hæsta klassa. Ég hefði ekki getað hugsað mér betra starfslið fyrir þessa ferð og er ótrúlega þakklátur fyrir þau. Þau gera svo mikið stemninguna með stelpunum og það skiptir svo gríðarlega miklu máli þegar þú ert saman í svona langan tíma að hópurinn sé þéttur og góður. Starfsliðið á svo sannarlega rosalega mikið hrós skilið fyrir sína vinnu."

Framtíðin er mjög björt
U19 landsliðið er á leiðinni á EM í sumar og í gær var leikmaður í byrjunarliði A-landsliðinu sem er gjaldgengur í U19 liðið, Thelma Karen Pálmadóttir. Er ekki hægt að segja að framtíð íslensks kvennafótbolta sé björt?

„Jú, hún er mjög björt. Það er ekki langt síðan ég var hérna með U17 ára landsliðinu sem aðstoðarþjálfari og þar áttum við mjög góða leiki á móti Frakklandi og Austurríki og völtuðum yfir Serbíu. Með þessum árangri hjá U19 getum við klárlega horft björtum augum á framtíðina. Við eigum rosalega mikið af leikmönnum sem eru að koma upp og það eru leikmenn sem gætu verið hérna núna, bæði Thelma og aðrar, sem skulu gjöra svo vel og vera í startholunum fyrir sumarið."

Góður andi og fagmannlega unnið
Donni hóf störf hjá KSÍ síðasta haust eftir að hafa þjálfað á Sauðárkróki árin á undan.

„Þetta hefur gengið rosalega vel, búið að vera virkilega gaman. Ég er mjög ánægður með starfsandann hjá sambandinu, virkilega gott utanumhald, Jörundur Áki reynst frábærlega, Magga og Aldís hafa verið algjörlega stórkostlegar og heilt yfir er andinn mjög góður. Óli Kristjáns hefur komið flott inn og Steini (Þorsteinn Halldórsson) veitir okkur flott aðhald. Þetta er flottur hópur sem vinnur að knattspyrnunni á Íslandi á eins fagmannlegan hátt og hægt er."

Svolítið klikkaður og ætlar sér að vinna allt
Var álitið raunhæft markmið síðasta haust að komast á EM?

„Ég held það hafi ekki endilega verið rætt. Þá átti eftir að draga og við áttum eftir að sjá hvar við stæðum í fyrsta milliriðli. Þegar við sáum þennan riðil þá sáum við möguleika. Þeir sem þekkja mig ágætlega vita að ég er svolítið klikkaður og ætla mér alltaf að vinna allt. Þannig hef ég alltaf verið og því settum við það sem markmið strax þegar við hittumst, þessi hópur, í Miðgarði. Stelpurnar unnu svo sannarlega fyrir því og eiga mestan heiðurinn skilið fyrir sitt framlag."

Donni er á leið til Bosníu í næstu viku en dregið verður í lokakeppnina 22. apríl.

„Mér skilst að ég sé að fara út næsta mánudag. Svo set ég fókusinn á önnur verkefni og með lokakeppnina bakvið eyrað."

Sigrar gegn góðum liðum
Af leikjunum þremur, gegn Finnlandi, Danmörku og Serbíu, er einhver leikur sem stendur upp úr?

„Mér fannst leikurinn gegn Finnlandi einn af betri leikjum sem við höfum spilað. Við vorum töluvert mikið meira með boltann og Finnland er þannig lið að þær vilja hafa boltann. Við náðum rosalega góðum takti í þeim leik, áttum 100% að vinna þann leik og það voru vonbrigði að gera það ekki. En heilt yfir var frammistaðan frábært. Danir eru með hæstskrifaðasta liðið í riðlinum og á, á pappír, í raun að vera betra en við. Þrátt fyrir að þær hafi skorað tvö sjálfsmörk þá áttum við það samt algjörlega skilið að vinna. Ég er mjög stoltur af þeim leikjum því þeir voru gegn liðum sem eru á svipuðu getustigi og, mögulega á pappír, aðeins fyrir framan okkur að einhverju leyti. Við náðum að klára það á brjálaðri orku og samheldni. Það var gríðarlegur vilji í hópnum."

„Leikurinn við Serbíu var snúinn því þar komum við inn í leikinn sem líklegra liðið til að sigra. Ég var ótrúlega ánægður með stelpurnar í dag, mörkin í dag voru algjörlega geggjuð. Við fengum held ég ekkert færi á okkur."


Hlakkar til að komast heim á Sauðárkrók
Nærðu einum degi í viðbót í sólinni áður en þú ferð heim?

„Það er búinn að vera mjög góður dagur í dag og ég er alveg nógu rauður í framan held ég. Ég er ekkert eðlilega spenntur að koma heim, fara á Krókinn, knúsa börnin mín og gera mig kláran í næsta verkefni," segir Donni.
Slapp
banner
banner