Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 15. maí 2020 22:45
Aksentije Milisic
Messi líkir Lautaro við Suarez
Lautaro og Messi.
Lautaro og Messi.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi hefur hrósað samlanda sínum Lautaro Martinez, framherja Inter og segir að hann sé magnaður leikmaður.

Þessi 22 ára gamli framherji er búinn að vera sjóðandi heitur á þessu tímabili og hefur mikið verið orðaður við Barcelona í kjölfarið. Hann er með riftunarákvæði í samningi sínum sem hljómar upp á 111 milljónir evra.

Messi hefur sagt að hann viti ekki hvort Martinez komi til Barcelona en hann hefur hrósað leikmanninum og líkt honum við liðsfélaga sinn, Luiz Suarez.

„Ég hef sagt það áður, Lautaro er frábær framherji. Hann hefur marga eiginleika. Hann er sterkur, góður í að halda boltanum, skorar mörk og er góður einn á einn. Hann berst gegn hverjum sem er og gefst aldrei upp," sagði Messi við El Mundo Deportivo.

„Það vissu allir að hann yrði frábær leikmaður og nú hefur hann sprungið út og sýnt öllum það. Hann er svipaður leikmaður og Suarez. Þeir eru með góðar hreyfingar og eru góðir í að klára færin."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner