Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 15. maí 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Zlatan sagður ætla að ganga í raðir Hammarby
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic ætlar að yfirgefa herbúðir AC Milan í sumar og ganga til liðs við Hammarby í Svíþjóð en fjölmiðlar á Ítalíu greina frá þessu í dag.

Zlatan keypti 25% hlut í Hammarby í nóvember og hann hefur æft með liðinu undanfarnar vikur.

Áður en kórónaveiran stöðvaði leik í Serie A á Ítalíu hafði Zlatan skorað þrjú mörk í átta leikjum með AC Milan eftir að hann kom til félagsins í janúar.

Hinn 38 ára gamli Zlatan er sagður vilja ganga til liðs við Hammarby þegar samningur hans hjá AC Milan rennur út í næsta mánuði.

Sóknarmaðurinn Aron Jóhannsson er á mála hjá Hammarby og hann og Zlatan gætu nú orðið liðsfélagar.
Athugasemdir
banner
banner
banner