Fotbolti.net
15.05.21 - 17:23
Hafliði BreiðfjörðBogi Sigurbjörnsson

Óskar Smári: Það fór um okkur þjálfarana

Auglýsing
Óskar Smári: Það fór um okkur þjálfarana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Frammistaða liðsins var hrikalega góð í dag, við spiluðum frábæran fótbolta í 75 mínútur,"</i> sagði Óskar Smári Haraldsson annar þjálfara Tindastóls eftir 2 - 1 sigur liðsins á ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna í dag, fyrsti sigur nýliðanna í Pepsi Max-deildinni.
„Það fór samt um okkur þjálfarana í lokin því ÍBV er með gott lið og þær eru með framherja sem skora mörk. Okkur leið ekkert vel þegar þær settu pressu á okkur en við náðum að klára og halda. Það var mikilvægt að sigla þessum þremur stigum heim."

Sjá mátti á liði Tindastóls að framfarir væru á spili liðsins. „Þegar við töluðum saman síðast náðum við stigi á móti Þrótti eftir að hafa gert vel varnarlega en ekki nægilega vel með boltann. Við fórum út á æfingasvæði og æfðum það að vera með boltann. Við erum góðar án boltans en hvað gerum við með boltann. Í dag var sú frammistaða töluvert betri."

Nánar er rætt við Óskar Smára í viðtalinu að ofan. Hann hrósar þar Fylki fyrir að standa með þeim í að fresta leik liðanna sem átti að fara fram fyrr í vikunni auk þess að fjalla um ÍBV liðið og komandi leik gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.