Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, skaut „Til hamingju með sigurinn í deildinni" inn í viðtal Fótbolta.net við Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, þjálfara Grindavíkur eftir sigur Grindavíkur gegn ÍBV fyrir rúmri viku síðan.
Sjá einnig:
GPL truflaði Bjössa eftir leik - „Til hamingju með sigurinn í deildinni"
Sjá einnig:
GPL truflaði Bjössa eftir leik - „Til hamingju með sigurinn í deildinni"
Guðjón var spurður út í þetta innlegg í viðtali eftir leik ÍBV og Fram í gærkvöldi. Viðtalið við Guðjón má sjá neðst í fréttinni.
„Ég var nú bara að grínast í Bjössa, Bjössi er mikill húmoristi og það er alltaf hægt að gera mikið glens í honum. Þeir töpuðu í gær (gegn Þór á fimmtudag), þeir eru ekki meiri meistararar en það," sagði Gaui.
„En Grindavík er með þrusulið og líta mjög vel út þannig ég var aðeins að grínast í honum. Var að vonast til að þeir myndu fara aðeins upp með hausinn og gleyma því í smá stund og það kannski virkaði," sagði Gaui og brosti.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir