Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. maí 2021 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
GPL truflaði Bjössa eftir leik - „Til hamingju með sigurinn í deildinni"
Lengjudeildin
Gaui í æfingaleik á dögunum
Gaui í æfingaleik á dögunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík vann 3-1 sigur á ÍBV í Lengjudeildini í gærkvöldi.

Liðin ætla sér bæði stóra hluti á leiktíðinni og vilja fara upp í efstu deild.

Það er hægt að gera því í skóna að Grindvíkingar hafi fagnað sigrinum vel og innilega því Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur, var truflaður í viðtali eftir leik.

Þar var að verki Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, sem lék ekki með í gær. Ætla má að hann hafi heyrt fagnaðarlæti Grindavíkur úr klefa þeirra eftir leik.

Guðjón Pétur sagði: Til hamingju með sigurinn í deildinni." Bjössi missti aðeins úr taktinn en náði sér fljótt aftur á strik.

Gaui lék mð Val á árunum 2016-18 þegar Bjössi var aðstoðarþjálfari liðsins. Atvikið má sjá í spilaranum hér að neðan.


Bjössi Hreiðars: Þú vilt koma vagninum af stað í fyrsta leik
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner