Fotbolti.net
15.05.26 - 22:35
Ívan Guðjón Baldursson

Emery: Magnað að spila í Evrópu fjórða árið í röð

Emery: Magnað að spila í Evrópu fjórða árið í röð
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery þjálfari Aston Villa var kátur eftir 4-2 sigur gegn Liverpool í næstsíðustu umferð enska úrvalsdeildartímabilsins.
Þetta er dýrmætur sigur fyrir Villa sem tryggir liðinu þátttökurétt í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð.

„Þetta eru stórkostleg úrslit sem þýða að við höfum náð okkar helsta markmiði á tímabilinu. Þetta var erfiður fyrri hálfleikur en við vorum frábærir í seinni hálfleik. Ég er mjög þakklátur stuðningsmönnum fyrir stemninguna sem þeir sköpuðu," sagði Emery eftir sigurinn frækna.

„Það er stórkostlegt að vera búnir að tryggja okkur aftur í Meistaradeildina. Það er magnað að spila í Evrópu fjórða árið í röð. Það er ekki auðvelt að vera samkeppnishæfir bæði í úrvalsdeildinni og í Evrópu á sama tíma, en við höfum staðið okkur ótrúlega vel allt tímabilið. Ég er svo stoltur af strákunum.

„Núna fer öll okkar einbeiting í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. 100% einbeiting. Það er mjög erfitt að spila úrslitaleiki og við ætlum að njóta stundarinnar."


Aston Villa spilar úrslitaleik Evrópudeildarinnar við Freiburg næsta miðvikudagskvöld.

England: Aston Villa skoraði fjögur gegn Liverpool
TENGT EFNI

England: Aston Villa skoraði fjögur gegn Liverpool

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.