Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
   fös 15. maí 2026 23:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sá olnbogaskot metra frá sér og vildi rautt: Fyrir vikið verð ég reiður
Þór/KA tapaði í bikarnum í dag.
Þór/KA tapaði í bikarnum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Mér fannst við eiginlega eiga að vinna þennan leik'
'Mér fannst við eiginlega eiga að vinna þennan leik'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Súrsætt að einhverju leyti. Mér fannst við gera margt gott í dag, en niðurstaðan er 1-4 sem er ljótt," segir Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, efitr tap í bikarnum gegn Stjörnunni í kvöld.

Staðan í leikhléi í var 1-1 en Stjarnan skoraði öll mörk seinni hálfleiksins.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  4 Stjarnan

„Mér fannst við jafna nokkuð verðskuldað í fyrri hálfleik og bregðast vel við því í fyrri hálfleiknum að lenda undir. Mér fannst við stjórna flestum þáttum leiksins í byrjun seinni en þær skora virkilega gott 2-1 mark sem kannski sjokkeraði okkur of mikið. Ég er ánægður með frammistöðu Þórs/KA."

„Í grunninn snýst þetta um að skila inn frammistöðum núna og það mun skila sér að lokum. Við fengum á okkur fjögur mörk sem er að sjálfsögðu ekki gott, en mér fannst frammistaðan ekki gefa þess merki að við ættum að fá á okkur fjögur mörk. Mér fannst við eiginlega eiga að vinna þennan leik."


Alli Jói fékk að líta gula spjaldið frá dómara leiksins fyrir munnsöfnuð þegar um tíu mínútur lifðu leiks. Hann sá leikmann Stjörnunnar gefa olnbogaskot í leikmanninn sinn. Þær Úlfa Dís (Stjarnan) og María Dögg (Þór/KA) voru að berjast um stöðu á vellinum.

„Við erum þarna að tapa leiknum og mögulega var ég heitari fyrir vikið. Þetta var sirka einum metra frá mér þegar leikmaður andstæðinganna í einhverjum fætingi snýr sér við og gefur olnbogaskot og fyrir vikið verð ég reiður. Mér fannst fjórði dómarinn vera það nálægt þessu að hann ætti að verða vitni af þessu, en það er auðveldara að spjalda þjálfarann en að taka á atvikinu. Leikurinn er búinn og við töpuðum honum og við gerum ekkert meira úr því, en ég var ekki ánægður með það að það hefði ekki verið tekið á þessu."

Sást þú þetta sem viljandi olnbogaskot og rautt spjald?

„Já."
Slapp
banner
banner