Fotbolti.net
15.05.26 - 13:46
Kári Snorrason

Tvö skemmtilegustu lið deildarinnar mætast

Frá 1-0 sigri KR á Fram í fyrra.

Frá 1-0 sigri KR á Fram í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR fær Fram í heimsókn á Meistaravelli á sunnudag. Um er að ræða tvö skemmtilegustu lið deildarinnar ef litið er til markafjölda í leikjum liðanna.

Þar er KR í sérflokki en Vesturbæingar hafa skorað 25 mörk og fengið á sig ellefu í fyrstu sex umferðum tímabilsins.

Framarar hafa einnig boðið upp á mikla skemmtun í upphafi móts. Í fyrstu sex leikjum þeirra hafa verið skoruð 29 mörk, en markatala liðsins er 18:11.
Rúnar og Kennie snúa aftur
Rúnar Kristinsson þekkir Meistaravelli þokkalega eftir að hafa stýrt KR í samtals ellefu tímabil, fyrst frá 2010 til 2014 og síðar frá 2018 til 2023.

Frá því að Rúnar tók við Fram haustið 2023 hefur hann mætt KR fimm sinnum og haft betur í þremur þeirra og tapað tveimur.

Rúnar sótti Kennie Chopart til liðs við Fram frá KR eftir komu sína í Úlfarsárdal 2023. Sá danski hefur farið á kostum í upphafi tímabils og er markahæsti leikmaður Fram með fjögur mörk í deild og eitt í bikar.

Fyrsta tap KR
KR er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Liðið tapaði fyrsta leik tímabilsins á miðvikudag er liðið laut í lægra haldi gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í hvernig tilfinningin væri að mæta í viðtal eftir tapleik, enda hafði það ekki gerst áður í sumar.

Óskar svaraði spurningunni léttur og sagðist búa að ágætri reynslu frá síðasta sumri.

Í sama viðtali sagðist Óskar ekki búast við Arnóri Ingva Traustasyni í leiknum á sunnudag en hann fékk höfuðhögg gegn Stjörnunni síðastliðinn föstudag.

Þá fór varnarmaðurinn Finnur Tómas Pálmason meiddur af velli vegna höfuðmeiðsla á miðvikudag og þá var annar varnarmaður, Michael Akoto, utan hóps.


Farið að höggva í hóp KR - „Allar hendur á dekk“
TENGT EFNI

Farið að höggva í hóp KR - „Allar hendur á dekk“



Besta karla
13:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Rúnar snýr aftur í Vesturbæinn.

Rúnar snýr aftur í Vesturbæinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tapaði gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum á miðvikudag.

KR tapaði gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum á miðvikudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.