Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 10:00
Kári Snorrason
Farið að höggva í hóp KR - „Allar hendur á dekk“
Arnór Ingvi fór meiddur af velli síðastliðinn föstudag eftir að hafa fengið höfuðhögg.
Arnór Ingvi fór meiddur af velli síðastliðinn föstudag eftir að hafa fengið höfuðhögg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar býst við Ástbirni á sunnudag.
Óskar býst við Ástbirni á sunnudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason og Ástbjörn Þórðarson voru hvorugir í leikmannahóp KR er liðið tapaði gegn Stjörnunni í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn.

Þá fór Finnur Tómas Pálmason af velli í leiknum eftir höfuðhögg. KR mætir Fram í sjöundu umferð Bestu deildarinnar á sunnudag.

Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldson, þjálfara KR, eftir leik liðsins á miðvikudag og spurði hann út í stöðuna á liðinu.

„Það er farið að höggva aðeins í hópinn. Þá þurfa aðrir að stíga upp, allar hendur á dekk. Þetta er tækifæri fyrir menn að taka pláss í hópnum.

Það eru margir sem hafa kannski verið frekar pirraðir yfir að hafa ekki verið að spila, fá ekki nógu margar mínútur. Nú er þeirra tækifæri að stíga upp og sýna að þeir eigi skilið að fá mínútur,“
sagði Óskar.

Á síður von á Arnóri gegn Fram
„Það væri ljúft að fá Arnór og Ástbjörn til baka á sunnudaginn. Ég á síður von á því að Arnór Ingvi verði með, hann fékk höfuðhögg á föstudaginn. Yfirleitt tekur það aðeins lengri tíma heldur en viku. Ég á von á Ástbirni ferskum á KR-vellinum á sunnudaginn,“ sagði Óskar að lokum.

Michael Akoto var ekki í leikmannahóp KR á miðvikudaginn sem og Guðmundur Andri Tryggvason, Birgir Steinn Styrmisson og Aron Þórður Albertsson sem hafa verið frá vegna meiðsla.

Arnar Freyr Ólafsson meiddist alvarlega í upphafi tímabils og verður frá til lengri tíma. Þá eru þeir Hjalti Sigurðsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson að koma til baka eftir meiðsli.

sunnudagur 17. maí
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
16:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Slapp