Fotbolti.net
15.06.16 - 20:06
Magnús Már Einarsson

Arnar Gunnlaugs í þjálfarateymi KR (Staðfest)

Arnar í leik með KR fyrir mörgum árum.

Arnar í leik með KR fyrir mörgum árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Arnar Gunnlaugsson hefur verið ráðinn í þjálfarateymi KR út tímabilið en hann verður aðstoðarþjálfari liðsins með þeim Guðmundi Benediktssyni og Henrik Bödker.

Arnar staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Arnar er í Grafarvoginum þar sem hann fylgist með leik Fjölnis og KR en mynd af honum má sjá hér að neðan.

Hinn 43 ára gamli Arnar er skráður á leikskýrslu en hann er þó ekki á varamannabekk KR heldur á svölunum fyrir ofan völlinn.

Arnar hefur verið sérfræðingur í Pepsi-mörkunum í sumar líkt og í fyrra.

Hann þekkir til hjá KR eftir að hafa spilað með liðinu frá 2003 til 2005.

„Arnar var ráðinn til KR í fyrradag og er ekki viss hvort hann sé hættur í Pepsi mörkunum. Menn eiga eitthvað eftir að ræða málin þar segir hann,\" sagði Daníel Geir Moritz í textalýsingu Fótbolta.net úr Grafarvogi.
Smelltu hér til að sjá textalýsingu úr Fjölnis og KR

Nýr maður i þjálfara teymi KR? #fotboltinet pic.twitter.com/iAuXlB672B

— Helgi Thorsteins (@Helgith) June 15, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.