15.06.16 - 22:47
Ívan Guðjón Baldursson
Denis Cheryshev keyptur til Villarreal (Staðfest)

Cheryshev í leik með Villarreal fyrir tveimur árum.

Mynd: Getty Images

Villarreal hefur fest kaup á rússneska kantmanninum Denis Cheryshev.
Cheryshev er 25 ára gamall og hefur verið samningsbundinn Real Madrid frá tólf ára aldri.

Hann á níu landsleiki að baki fyrir Rússland en komst ekki í hópinn fyrir EM þar sem allir nema einn í hópnum spila í rússnesku deildinni.
Cheryshev hefur verið hjá Sevilla, Villarreal og Valencia á láni undanfarin tímabil og nú hefur Villarreal fest kaup á honum.
Ekki hefur verið greint frá kaupverðinu en það er talið nema um 10 milljónum evra.