Fotbolti.net
15.06.21 - 19:46
Victor Pálsson
Ítalski boltinn

Morata áfram hjá Juventus (Staðfest)

Morata áfram hjá Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alvaro Morata mun leika með Juventus á næstu leiktíð en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Morata var í láni hjá Juventus frá Atletico Madrid á síðustu leiktíð og skoraði þá 11 mörk í 32 leik.

Juventus hefur náð samkomulagi við spænska félagið um að framlengja lánssamninginn til 2022.

Morata er að spila fyrir Juventus í annað sinn en hann var einnig hjá félaginu frá 2014 til 2016.

Eftir það hélt Morata aftur til Real Madrid og síðar til Chelsea þar sem hlutirnir gengu ekki upp.

Morata er landsliðsmaður Spánar og spilar með spænska landsliðinu á EM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.