Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 15. júní 2021 19:08
Victor Pálsson
Ronaldo fékk fingurinn frá stuðningsmönnum Ungverjalands
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo elskar fátt meira en að skora mörk og gerði hann tvö fyrir portúgalska landsliðið í kvöld.

Portúgal var í töluverðu veseni gegn Ungverjalandi í fyrsta leik sínum á EM alls staðar en vann að lokum 3-0 sigur.

Fyrsta mark Portúgala skoraði Raphael Guerreiro á 83. mínútu og bætti Ronaldo svo við tveimur fyrir lokaflautið.

Ronaldo er ekki vinsæll hjá öllum en hann fékk fingurinn frá stuðningsmönnum Ungverjalands er hann fagnaði marki í kvöld.

Stuðningsmenn kepptust við að taka Ronaldo upp á myndavél og gefa honum puttann - einn hress náði að gera bæði í einu.

Mynd af þessu má sjá hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner