Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. júní 2022 22:26
Hafliði Breiðfjörð
Myndir: Árni Snær fékk stóran skurð í andliti gegn KR
Árni Snær eftir meiðslin í kvöld.
Árni Snær eftir meiðslin í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net

Árni Snær Ólafsson markvörður ÍA fékk stóran skurð á andlit í 3 - 3 jafntefli liðsins við KR í vesturbænum í kvöld.


Lestu um leikinn: KR 3 -  3 ÍA

Atvikið átti sér stað í uppbótartíma við jöfnunarmark KR sem Alex Davey skoraði í eigð mark en í aðdragandanum meiddist Árni eftir viðskipti við Finn Tómas Pálmason.

„Árni Snær, markmaður ÍA, liggur eftir í teig ÍA. Vildi fá brot dæmt! Takkarnir á Finni Tómasi enduðu í andliti Árna og það fossblæðir úr andliti markmannsins. Algjört óviljaverk," skrifaði Sæbjörn Steinke í textalýsinguna á Fótbolta.net.

Fleiri myndir af Árna má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner