Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. júní 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sveindís Jane átti þátt í sigurmarki Keflavíkur í gær
Elín Helena skoraði mark Keflavíkur.
Elín Helena skoraði mark Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, var til viðtals hér á Fótbolta.net í gær eftir sigur síns liðs gegn Stjörnunni í Bestu kvenna.

Sverrir Örn Einarsson ræddi við Gunnar og kom sigurmarkið til tals. Gunnar hafði skemmtilega sögu um það að segja.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Stjarnan

Elín Helena Karlsdóttir skoraði markið á 47. mínútu leiksins. Hún er á láni hjá Keflavík frá Breiðabliki.

„Í byrjun leiks fékk Stjarnan sín hættulegustu færi en við stóðumst þetta áhlaup, gerðum vel og náðum að pota inn einu marki."

„Það var Sveindís Jane sem átti þátt í því marki, það voru skórnir hennar sem skoruðu í dag,"
sagði Gunnar.

Sveindís Jane Jónsdóttir er Keflvíkingur sem lék með meistaraflokki liðsins á árunum 2015-2019. Árið 2020 lék hún með Breiðabliki á láni og fór svo í atvinnumensku á síðasta ári.


Gunnar Magnús: Það fer ekkert um mann þá
Athugasemdir
banner
banner
banner