Fotbolti.net
15.06.25 - 09:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Magnús Haukur spáir í 9. umferð Bestu kvenna

Magnús Haukur Harðarson.

Magnús Haukur Harðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Níunda umferð Bestu deildar kvenna hefst í dag og klárast á morgun; það eru þrír leikir í dag og svo tveir annað kvöld.

Magnús Haukur Harðarson, fyrrum þjálfari Fjölnis og núverandi sérfræðingur í hlaðvarpinu Uppbótartíminn, spáir í leikina sem eru í umferðinni.
Ísland í dag - Breiðablik í Eyjum og botnslagir
TENGT EFNI

Ísland í dag - Breiðablik í Eyjum og botnslagir

Valur 0 - 1 Fram (14:00 í dag)
Ef einhver hefði hvíslað því að mér fyrir mót að Fram væri þremur stigum fyrir ofan Val fyrir leik liðanna í 9. umferð, þá hefði maður hlegið. Þrátt fyrir bikarsigur í vikunni munu Valskonur tapa þessum leik 0-1 og mun sigurmarkið koma úr óvæntri átt en Freyja Dís Hreinsdóttir mun skora sitt fyrsta mark í efstu deild.

FHL 0 - 2 Víkingur R. (14:00 í dag)
Koma fyrstu stig FHL eða vinnur Víkingur sinn fyrsta leik síðan í apríl? Svarið er einfalt fyrir Víkinga og aðeins erfiðara fyrir FHL. Linda Líf kemst af stað og skorar tvö mörk í öruggum 2-0 sigri.

Stjarnan 0 - 4 Þróttur R. (16:15 í dag)
Gæðamunurinn er rosalegur og eftir vont tap í vikunni rúlla Köttarar yfir Silfurskeiðina bæði í stúkunni og á vellinum. Freyja skorar þrennu í 4-0 sigri.

Þór/KA 1 - 3 Breiðablik (17:00 á morgun)
Fellur Þór/KA á en einu prófinu? Blikakonur eiga enn eftir að spila góðan heilan leik á tímabilinu og það gerist fyrir norðan þar sem Nik spilar vel valinn RAVE lög í klefanum fyrir leik og Agla María gírast öll og setur stoðsendingaþrennu í 3-1 sigri.

FH 4 - 0 Tindastóll (18:00 á morgun)
Það gengur allt í Hafnarfirðinum þessa dagana og verður þetta öruggur 4-0 sigur þar sem Elísa Lana heldur áfram að vera besti leikmaðurinn á vellinum, skorar tvö og leggur upp tvö.

Fyrri spámenn:
Adda Baldurs (5 réttir)
Vigdís Lilja (4 réttir)
Mist Rúnarsdóttir (4 réttir)
Guðrún Karitas (3 réttir)
Katla Tryggvadóttir (3 réttir)
Gylfi Tryggvason (3 réttir)
Emelía Óskarsdóttir (3 réttir)
Ásta Eir (2 réttir)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í Bestu deild kvenna eins og hún er akkúrat núna.
Maggi spáir stórsigri hjá Þrótti.

Maggi spáir stórsigri hjá Þrótti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik mætir Þór/KA.

Breiðablik mætir Þór/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.