Fotbolti.net
15.06.26 - 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vestri hefur tvo mánuði til að ráða mann með UEFA Pro gráðu

Bikarmeistararnir á leið í Evrópu.

Bikarmeistararnir á leið í Evrópu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan tilkynnti á laugardag að Jón Þór Hauksson væri nýr þjálfari liðsins en hann var á samningi hjá Vestra sem hluti af þjálfarateymi liðsins.

Vestri þurfti og þarf að vera með mann í starfi sem er með UEFA Pro þjálfaragráðuna vegna þátttöku liðsins í Evrópuleikjum í sumar. Daniel Badu er aðalþjálfari Vestra.
Jón Þór skrifaði undir tveggja ára samning hjá Stjörnunni
TENGT EFNI

Jón Þór skrifaði undir tveggja ára samning hjá Stjörnunni

Samúel Samúelsson, meðstjórnandi í stjórn Vestra, segir við Fótbolta.net að félagið hafi 60 daga til að fá inn mann með gráðuna.

„Ég er alveg rólegur, höfum 60 daga til að bregðast við. Menn skilja alveg að það sé ferli að ráða þjálfara. Við erum að fara auglýsa eftir þjálfara fljótlega og sjáum hvað við fáum inn á borð." segir Sammi.

Í samkomulagi Jóns Þórs við Vestra var möguleiki fyrir hann að taka við félagi í Bestu deildinni eða erlendis án þess að Vestri gæti komið í veg fyrir það.

„Hluti af dílnum við Jón var þannig að við gætum ekki staðið í veg fyrir honum ef svona tækifæri kæmi upp."

Á morgun kemur í ljós hvaða liði Vestri mætir í 1. umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni.
Jón Þór samdi í Garðabæ.

Jón Þór samdi í Garðabæ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.