Fotbolti.net
15.07.26 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Leeds kaupir miðvörð fyrir 40 milljónir

Leeds kaupir miðvörð fyrir 40 milljónir
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Leeds United er að ganga frá kaupum á bosníska landsliðsmanninum Tarik Muharemovic sem kostar 40 milljónir evra, sem samsvarar um 34 milljónum punda.
Muharemovic er 23 ára gamall og var meðal bestu leikmanna Sassuolo á síðustu leiktíð eftir að félagið keypti hann úr röðum Juventus, sem hélt 50% endursöluákvæði.

Sassuolo borgaði aðeins 2 milljónir evra til að kaupa Muharemovic úr röðum Juve. Það er því óljóst hvort Sassuolo fái 20 eða 22 milljónir í vasann fyrir félagaskiptin, á meðan Juve fær 18 eða 20 milljónir.

Bournemouth og Sunderland sýndu varnarmanninum einnig áhuga en Leeds er búið að vinna kapphlaupið. Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.

Muharemovic verður annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Leeds í sumar eftir að félagið krækti í Harry Wilson á frjálsri sölu. Illan Meslier og Pascal Struijk hafa yfirgefið félagið.

Leeds bætist við kappið um landsliðsmann Bosníu
TENGT EFNI

Leeds bætist við kappið um landsliðsmann Bosníu

Leeds kaupir miðvörð fyrir 40 milljónir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.