Fotbolti.net
15.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vestergaard semur um starfslok

Vestergaard semur um starfslok
Canon

Mynd: EPA

Danski miðvörðurinn Jannik Vestergaard er á förum frá Leicester City eftir fimm ár hjá félaginu.
Vestergaard er 33 ára gamall og átti eitt ár eftir af samningi við félagið eftir fall úr Championship deildinni á síðustu leiktíð.

Hann var einn af launahæstu leikmönnum félagsins og ákváðu stjórnendur því að semja við hann um starfslok til að lækka launakostnaðinn hjá leikmannahópi sem lék í ensku úrvalsdeildinni á þarsíðustu leiktíð.

Aðilar eru í viðræðum um starfslok þessa dagana og greina enskir fjölmiðlar frá því að samkomulag sé í höfn. Vestergaard verður því frjáls ferða sinna í sumar og mun hafa ýmsa valkosti fyrir framtíðina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.