Markavél Celtic þráir að spila á Englandi

Maeda lék stóran þátt í að tryggja tvennuna.

Mynd: EPA

Hann skoraði eitt mark í þremur leikjum með Japönum á HM.

Japanski sóknarleikmaðurinn Daizen Maeda vill ólmur skipta í ensku úrvalsdeildina til að reyna fyrir sér í deild þeirra bestu áður en hann verður of gamall.

TENGT EFNI
Stjörnuleikmaður Japan vill skipta í betri deild
Maeda er 28 ára og er algjör lykilmaður í liði Skotlandsmeistara Celtic og japanska landsliðinu. Hann skoraði 9 mörk og gaf 2 stoðsendingar í síðustu 7 leikjunum með Celtic á síðustu leiktíð. Mörkin hans hjálpuðu stórveldinu að tryggja sér bæði Skotlandsmeistaratitilinn og skoska bikarinn eftir harða baráttu.
Maeda er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Celtic og talar opinskátt um að vilja félagaskipti í sterkari deild.
„Eftir félagaskiptin til Celtic byrjaði ég að horfa á ensku úrvalsdeildina og heillaðist af henni. Ég horfi á alla leiki sem ég get og mig dreymir um að spila í þessari deild áður en það verður of seint," segir Maeda. „Ég vil komast á hærra gæðastig."
Maeda kom með beinum hætti að 27 mörkum í 54 leikjum með Celtic á síðustu leiktíð. Það er þó ekki jafn góður árangur og hann náði á þarsíðasta tímabili, þegar hann kom með beinum hætti að 45 mörkum í 51 leik.