15.08.15 - 10:09
Elvar Geir Magnússon
Clinton Njie til Tottenham (Staðfest)

Spennandi tímar framundan.

Mynd: Tottenham

Spennandi tímar framundan.

Mynd: Tottenham
Tottenham hefur staðfest kaup sín á sóknarmanninum unga Clinton Njie. Þessi 22 ára leikmaður kemur frá Lyon í Frakklandi og hefur skrifað undir samning til 2020. Aðeins á eftir að fá atvinnuleyfi fyrir leikmanninn í hús.
Clinton, eins og hann vill láta kalla sig, á 22 ára afmæli í dag en hann getur bæði leikið sem fremsti maður og á vængnum. Hann er fæddur í Kamerún og á ellefu landsleiki fyrir þjóðina.
„Ég er mjög ánægður með að vera kominn í stórt félag á Englandi. Ég er enn ungur og er að læra og þetta er stór áskorun. Enska úrvalsdeildin er ein stærsta deild heims,\" segir Clinton.
„Þetta er metnaðarfullt félag og ég er tilbúinn að gera allt til að hjálpa því að ná markmiðum sínum.\"