Fotbolti.net
15.08.15 - 22:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hector Moreno til PSV (Staðfest)

Hector Moreno er farinn til Hollands

Hector Moreno er farinn til Hollands

Canon

Mynd: Getty Images

PSV hefur fest kaup á mexíkóska varnarmanninum, Hector Moreno, frá Espanyol.

Kaupverðið er talið hljóða upp á 3,5 milljónir evra og krotaði Moreno undir fjögurra ára samning við hollensku meistaranna.
\"Þetta eru góð skipti fyrir mig. Hjá PSV get ég barist um titla og spilað í Meistaradeildinni. Ég var tilbúinn fyrir nýja áskorun og PSV hefur veitt mér hana,\" sagði Moreno.

\"Fótboltagetan mín og persónuleiki hefur vaxið á tíma mínum á Spáni. Þar spilaði ég gegn bestu leikmönnum í heimi.\"

Þetta verður í annað skiptið sem Moreno mun spila með félagi í Hollandi, en hann spilaði áður með AZ Alkmaar.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.