Fotbolti.net
15.08.15 - 08:30
Arnar Geir Halldórsson

Raul Jimenez til Benfica (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður Benfica

Nýjasti liðsmaður Benfica

Canon

Mynd: Getty Images

Mexíkóski framherjinn, Raul Jimenez, er genginn til liðs við portúgalska stórveldið Benfica frá Atletico Madrid.
Jimenez gerir fimm ára samning við Benfica eftir að hafa aðeins staldrað við í eitt ár hjá Atletico Madrid.

Honum tókst ekki að brjóta sér leið í byrjunarliðið og gerði aðeins eitt mark í 27 leikjum fyrir Madrídarliðið.

Benfica þarf engu að síður að punga út 9 milljónum evra fyrir þennan 24 ára framherja sem hefur skorað 8 mörk í 36 landsleikjum fyrir Mexíkó.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.