Fotbolti.net
15.08.15 - 07:00
Arnar Geir Halldórsson

Valbuena og Yanga-Mbiwa til Lyon (Staðfest)

Valbuena er kominn heim til Frakklands

Valbuena er kominn heim til Frakklands

Canon

Mynd: Getty Images

Franska úrvalsdeildarliðið Lyon hefur farið mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar og hafa nú gengið frá samningum við tvo franska landsliðsmenn.
Mathieu Valbuena er kominn aftur í frönsku deildina en hann kemur til Lyon frá Dinamo Moskvu eftir stutta dvöl í Rússlandi.

Lyon borgar 5 milljónir evra fyrir þennan þrautreynda landsliðsmann og gerir hann þriggja ára samning við félagið.

Mapou Yanga-Mbiwa er einnig kominn til Lyon eftir stutt stopp hjá Roma á Ítalíu. Yanga-Mbiwa sló í gegn með Montpellier í franska boltanum áður en hann gekk til liðs við Newcastle.

Eftir eitt ár á Englandi hélt hann til Roma og nú, eftir eitt ár í Róm, er hann kominn aftur til Frakklands. Lyon borgar 8 milljónir evra fyrir þennan 26 ára varnamann sem á 4 landsleiki fyrir Frakkland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.